Stutt pæling: Banjó... furðulegur hlutur...
sunnudagur, júlí 27, 2003
Ég ætla að þakka Guggu innilega fyrir að skrifa í gestabókina... núna er hún í uppáhaldi:D
laugardagur, júlí 26, 2003
Ég var að fara inná teljarann minn og ég er þessvegna í mjög góðu skapi:D Þótt öðrum finnist það ekki mikið þá hef ég klifið yfir 500 manna múrinn og rúmlega það B) Auk þess að hafa fengið gesti frá Íslandi hafa komið á þessa síðu hefur komið fólk frá USA, Danmörku, Bretlandi, Svíþjóð, Hollandi, Frakklandi, Noregi, Canada og Slóveníu! Ég er í so góðu skapi:D
...samt pæling: Hvað eru allir þessir útlendingar að pæla? Þetta er ellt á Íslensku!:O :)
...samt pæling: Hvað eru allir þessir útlendingar að pæla? Þetta er ellt á Íslensku!:O :)
jæja, nú er kominn tími á blogg. það eru semsagt 16 dagar síðan ég bloggaði síðast og ég vona að það láti fólk halda að égeigi mér líf (sem ég á) ég er að fara að fara í smárann og tékka á búð sem að verður vonandi framtíðar vinnustaðurinn minn og svo ætla ég að gera eikkað brjálað íkvöld með híenunum, ef að Gugga fær að stíga út úr húsi (mamma hennar og pabbi komu fyrr heim úr sveitinni en hún bjóst við) en mar bara vonar það bezta :) ég hef í rauninni ekkert skemmtilegt að segja frá... ég fór í ammæli til Júlz um daginn og það var bara gegt næs, pizza og vídjó og afslappelse... Ég gaf henni soka og 3 geislediska (einn þeirra var skrifaður og ég notaði hann sem kort) Ég skil ekki ákkurru nokkur manneskja ætti að nenna að lesa þetta boring sjitt þannig að ég bara...
fimmtudagur, júlí 10, 2003
Afhverju segir fólk ,persónulega' áður en það lætur í ljós skoðanir sínar á einhverju? Eins og t.d. ,Persónulega finnst mér þetta bara alls ekki sniðugt' Ég bara skil þetta ekki. Ef einhver segir ,Mér finnst kaffi gott' þá er það auðvitað persónulega. Það er eins og að fólk sé að leggja áherslu á að þetta sé sín skoðun þótt að það sé allveg augljóst! Ég meina, hver segir ,Mér minnst kaffi gott' en var svo allann tímann að tala um vin sinn hann Kalla? Í rauninni er orðið persónulega algjörlega óþarft þótt það sé svona líka ótrúlega mikið notað!
...Þetta meikar sens ......er það ekki annars?
...Þetta meikar sens ......er það ekki annars?
mánudagur, júlí 07, 2003
Ég er mjög reið... nei ekki reið, ég er sár. Bloggerinn minn brást vonum mínum. Ég var búin að skrifa fáránlega langt blogg miðað við hverju ég er vön en bloggerinn barasta tók uppá því að henda því útí buskann þar sem ég sé það aldrei aftur og nú neyðist greyið ég til að sætta mig við staðreyndirnar og byrja alveg uppá nýtt. Mér finnst soldið asnalegt að skrifa það sama aftur upp eftir minni þannig að ég ætla bara að kasta því útum gluggann. Þið munið aldrei nokkruntíman komast að því hvað fólst í hugleiðingum mínum fyrr í kvöld, þótt mig gruni að það sé ekki mikill missir og þið verðið búin að gleyma þessu eftir sirka 37 sekúndur. Ég er hef verið að pæla pínu í því hvað ég er einmanna að halda áfram að skrifa á þetta blogg. Ég hef í rauninni enga ástæðu sem mælir með því en hinsvegar eru margar sem mæla á móti því. Til dæmis er það mjög takmarkað sem ég má skrifa á bloggið mitt vegna þess að það er, eins og allir vita, opið almenningi. Þá huxar maður út í það að það er hægt að líta á þetta sem þjónustu í þágu almennings (felst í því að skapa skemmtiefni handa fólki sem leiðist og hefur ekkert að gera) og sú afsökun virkar alveg... hjá mörgum. Ég er ekki í þeim hópi. Ég er með teljara á blogginu mínu (klikkið á litla bláa kassann í vinstra horninu neðst á blogginu) sem segir mér hversu margir koma á það. Hann sannar það sem margan grunar (ásamt mér að sjálfsögðu) að það koma mjög fáir, ef nokkrir á þetta blogg mitt... og eru það flest einhverjir sem fara óvart inn og lízt alls ekki á það sem þeir eru að sjá. Þar sem það kemur enginn á þetta blogg mitt get ég ekki verið að skemmta neinum með þessu röfli. Ég kemst í rauninni að þeirri niðurstöðu að sá eini sem hefur gagn og gaman af þessu bloggi er ég... og það þýðir að ég er að gera þetta til að mér líði vel, sem þýðir að ég er pjúra sjáfselsk Eina ástæðan fyrir því að þú ert að lesa þetta núna er semsagt sú að ég er sjálfsesk!
.....vá... Ég þurfti að taka mér pínu hlé eftir þessa brjáluðu uppgötvun. Þetta er svona eins og að vera búinn að vera að leysa stærðfræðidæmi í langan tíma og loksins fær maður útkomuna 7. Tala sem kemur að manni algerlega óvörum vegna þess að maður hélt allan tímann að svarið væri 6. En núna stendur þessi tala á blaðinu fyrir framan mann og maður getur ekkert gert. Maður getur svosem reiknað dæmið aftur en þessi sjöa er núna óumflýanleg. Núna veit maður svarið and there´s no way back...
...ég ætla bara að fara að sofa eða eitthvað, þessi sjöa er alveg búin að gera útaf við mig...
.....vá... Ég þurfti að taka mér pínu hlé eftir þessa brjáluðu uppgötvun. Þetta er svona eins og að vera búinn að vera að leysa stærðfræðidæmi í langan tíma og loksins fær maður útkomuna 7. Tala sem kemur að manni algerlega óvörum vegna þess að maður hélt allan tímann að svarið væri 6. En núna stendur þessi tala á blaðinu fyrir framan mann og maður getur ekkert gert. Maður getur svosem reiknað dæmið aftur en þessi sjöa er núna óumflýanleg. Núna veit maður svarið and there´s no way back...
...ég ætla bara að fara að sofa eða eitthvað, þessi sjöa er alveg búin að gera útaf við mig...

