undarlegt... ég er búin að eignast svona leynidagbók... ég skrifa á bloggið mitt og enginn mun nokkru sinni finna það í skúffunni minni og hnýsast... bloggið mitt er orðið gleymt og grafið og ég hef satt að segja aldrei verið ánægðari með það... furðulegt, ætli blogg séu eilíf? Fyrnast þau aldrei? Get ég farið á bloggið mitt þegar ég er þrjátíogfimm og lesið hugsanir mínar frá yngri árum? Þetta vildi ég gjarnan vita því líklega hef ég ekkert betra að gera þegar ég er orðin elliær...
Air bud er góður gaur. Fyrst um sinn streittist ég dálítið á móti honum og gerði grín að nafninu hans, en svo rann upp fyrir mér ljós og ég gerði mér grein fyrir feilsporum mínum í lífinu, ekki öllum, en þónokkrum. Þau skulu ekki hér upp talin.
Júlía er bestust, gugga er flottust og klara er fínust... Sigrún norska er líka skemmtilegust ef út í þá sálma er farið (sorry sigrún með medalíuna þína... mér bara datt ekkert betra í hug á þeim tímapunkti, skemmtilegust er frekar lélegt) rannveigu hlaust sá heiður að vera fínust, en út í þetta mun ekkert meira farið þar sem fæstir munu skilja þetta... jafnvel ekki júlía, gugga, klara, sigrún og rannveig heldur... bara sona uppá lengd (bloggsins að sjálfsögðu).
en já, úti er bylur og ég er hrædd um áhrif hans á ferð mína vestur sem stendur til að halda í á morgun, það verður beðið til guðs í kvöld...