þriðjudagur, apríl 13, 2004

HÓLÍMOTHERFOKKINGSJITT!!!!


Ég komst inn í Götuleikhúsið!

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Síðasta laugardag fór ég í svona götuleikhúsprufu og var það allt gott og blessað. Við vorum svona 15 sem mættum þarna og fórum í allskonar spunaleiki og áttum meðal annars að flytja ástarljóð á bullmáli. Þetta gekk bara mjög vel og ég var ein af nokkrum sem fengu viðtal og séns á vinnu í götuleikhúsinu. Viðtalið fannst mér bara vera að ganga mjög vel, en kom svo ekki í ljós að ég er að fara til Svíþjóðar í æfingabúðir 9-16 júní! Ég lagðist eftir þessa uppgötvun í alvarlegt þunglyndi vegna þess að þetta jafnar götuleikhússdrauma mína við jörðu. Ég hef eytt síðustu dögum í mikla þunglyndistónlist, en núna ætla ég bara að sætta mig við örlög mín og heiti því að taka þetta allt með trompi næsta sumar því það er það eina sem ég get gert... Í staðin var ég að fá vinnu í kringlubíói sem er langtífrá jafn glæsilegt og götuleikhúsið. Er ekki lífið dásamlegt?

En svo ég hressi mig aðeins upp var ég að enduruppgötva bók sem Grétar stóribróðir gaf mér á sínum tíma. Hún ber titilinn "The worst-case scenario survival handbook" og í henni segir hvernig skal taka á móti barni í laigubíl, glíma við krókódíl og lenda flugvél svo dæmi séu tekin. Þessi bók er alveghreint ómissandi og ég er handviss um að hún á eftir að koma sér vel einhvern daginn. Til að þið séuð betur undirbúin undir hvurslags hremmingar langar mig að segja ykkur hvernig eigi að hoppa fram af brú eða kletti ofaní á:

Hvernig skal stökkva:

1. Hoppaðu með fæturnar á undan
2. Haltu líkamanum fullkomlega lóðréttum
3. þrýstu fótunum saman
4. Kreistu saman rasskinnunum (ef þú gerir það ekki getur vatn brotist inn um rassinn og valdið alvarlegum innvortis skaða)
5. Verndaðu klofið með höndunum
6. Um leið og þú kemur í vatnið skaltu breiða út höndum og fótum og hreyfa fram og til baka til að skapa mótstöðu sem hægir á falli þínu til botnsins (gerðu alltaf ráð fyrir grunnu vatni og að þú lendir á botninum)

Varúð:

-Þetta gæti bjargað lífi þínu en gæti samt brotið á þér fæturnar.
-Ef þú ert ekki beinn gæti bakið þitt brotnað.
-ekki láta það koma þér til hugar að stinga þér með höfuðið á undan nema ætlunin sé sú að stökkið leiði til dauða.

"fáðu þér döðlu"
"ókei"