mánudagur, maí 10, 2004

Ég var að læra í gær og þá poppaði ein minning upp í huga mér... þetta þykir mér sönnun þess að foreldrar manns eru ekki alvitrir. Ég var mjög ung, svona fimmára og ég var útí búð með pabba. Einhverja hluta vegna bað ég um fransbrauð en pabbi sagði nei. Þegar ég spurði af hverju ég mætti ekki fá svona fínt brauð var svar hans þetta: "Af því ef þú borðar of mikið af hvítu brauði endarðu á því að líta út eins og múmínálfur." Ég henti brauðinu frá mér í hryllingi og síðan hefur alltaf eitthvað verið í undirmeðvitundinni minni sem fær mig til að velja gróft brauð framyfir fínt. Ég minnist þess meira að segja að hafa miðlað þessarri vitneskju í góðri trú um að hún væri sönn. Svona geta foreldrar manns verið sniðugir.

...Er Sigurður Richter giftur?