sunnudagur, september 19, 2004

Ég á semsagt kanínu. Sú heitir Lukku Láki en vegna miskilnings um kynferði er hann alltaf kallaður Lukka. Fyrir dálitlu var búrið hennar Lukku ásamt henni (honum) fært inn í bílskúr og var það bara hið besta mál. Hún fékk að hlaupa um og vera frjálsari en ella og ég passaði að gefa henni reglulega að borða og drekka. Í sumar gerðist það svo að nokkrir hressir geitungar tóku sig til og stofnuðu geitungasambýli undir bílskúrshurðinni. Síðan þetta gerðist hafa fóðrunarferðirnar mínar í bílskúrinn allar verið eins: Ég fer út, horfi á bílskúrshurðina, fyllist ofsahræðslu og sný við. Nú fer hinsvegar bráðum að vetra og þegar ég tel mig örugga um það að allir geitungar séu steindauðir, mun ég loks sjá Lukku Láka aftur og verður gaman að vita hvernig hungrið og nálægðin við óargadýrin hefur farið með hana. En svo er það spurningin, hvenær deyja geitungar?

miðvikudagur, september 08, 2004

Já, nú verður bíllinn tekinn með trompi! Í gær og í dag er ég búin að taka fjóra ökutíma og fyrsta sessjónið af ökuskóla eitt, og það er sko bara drullugaman að keyra (fyrir þá sem hafa ekki prófað það) Að hugsa sér að í gær hafði ég aldrei setið í bílstjórasæti á bíl, en í dag er ég fullfær ökumaður með ökuskiltin á hreinu... Svona er þetta sniðugt allt saman!
Mig langaði bara að koma þessu að og get eiginlega ekki haft þetta lengra því ég þarf að farað klippa og klessulita fyrir íslensku... annars segi ég bara allt fínt

miðvikudagur, september 01, 2004

Já það er nú það. Mér tókst að blogga tvisvar í sumar og það er bara drullulélegt að mínu mati. En samt hef ég það mér til varnar að ég fór þrisvar til útlanda og því má draga mánuð af þeim tíma sem ég hafði aflögu til ritstarfa. Nú er hinsvegar skólinn byrjaður og þá er maður kominn á fullt við að leita sér að eitthverju öðru að gera en að læra. Þá er bloggið gott ráð.
En ég gerði mikið í sumar. Ég vann í bíóinu, vann í götuleikhúsinu, vann í bingói og fór til Svíþjóðar, Lettlands og Spánar. Þessar þrjár utanlandaferðir gætu ekki hafa verið ólíkari hvor annarri. Til Svíþjóðar fór ég í æfingarbúðir þar sem markmiðið var útiskokk á morgnana og þrjár æfingar á dag, til Lettlands fór ég með götuleikhúsinu þar sem markmiðið var að leika listir okkar og fara svo á Latvijas-Rokkafejnica á kvöldin (mætti þýða sem latneska rokkhátíð þótt þar hafi aðallega verið spiluð kántrítónlist), og svo fór ég til Spánar með fjölskyldunni þar sem markmiðið var að sleikja sólina og versla eins og brjálæðingur, en lítið var verslað þar sem mér tókst að gleyma kortinu mínu heima á landi íss og klaka og kunni ekki við það að rýja foreldra mína inn að skinni.
Sumrinu lýst í stuttu máli...

og já, bæ