föstudagur, október 08, 2004

Í gær skilaði ég ritgerð á réttum tíma. Ég fattaði það ekki fyrr en nokkrum tímum seinna að það hefur aldrei komið fyrir áður. Það finnst mér nett ömurlegt. Ég fæ svona tvær vikur til að skrifa sirka fimm blaðsíður, en ég þarf endilega tvær vikur og þrjá daga. Hvurslags aumingjaskapur er það eiginlega? Líka með heimavinnu. Ég verð að hætta að treysta því að allt 'reddist' það er bara fyrir asna.