sunnudagur, desember 19, 2004

Ég er græn í framan. Eins og sjórinn þegar hann er reiður. Enda er ég reið. Ég vil biðja alla að hætta að skipta við Sambíóin Kringlunni vegna þess að fyrir utan ömurlegar myndir er mesti vangefningur sem ég hef nokkrusinni hitt yfirmaður þar. Hann heitir Einar. Hann er þrjátíu og níu ára gamall heimilisofbeldismaður sem níðst á starfsmönnum kringlubíós sem best hann getur. Eftir að hann hefur fengið einhverja útrás með því að öskra og æpa á láglaunaða starfsmenn bíósins keyrir hann burt á silfurlitaða porsjinum með sérhönnuðu númeraplötunni. Þegar hann kemur heim talar hann við nítján ára gömlu kærustuna sína og hringir svo í viðhaldið. Ég hef einusinni séð hann brosa og það var þegar Árni Sam kom í heimsókn (eigandi sambíóanna).
Megi þessi maður borga fyrir gjörðir sínar.

sunnudagur, desember 12, 2004

Mér finnst fátt vera jólalegra en Die Hard 2. Ég skil hvorki upp né niður í því en alltaf þegar jólin fara að nálgast fer mig að langa óstjórnlega mikið að setjast fyrir framan sjónvarpið með jólastaf og horfa á Die Hard 2. Þá finnst mér jólin vera komin. Þetta hefur verið svona frá því ég var 11 - 12 ára gömul.
Það er merkilegt hvað mér dettur í hug að gera þegar ég á að vera að læra fyrir próf. Rétt áðan var ég að lemja stólnum mínum lauslega í skrifborðið í svona korter. Ég spila líka ótrúlega mikið á öll hljóðfærin í húsinu. Jólalögin eru áberandi í jólaprófunum, en "lóan er komin" og "nú er sumar gleðjist gumar" eru vinsæl í vorprófunum. Fólkinu í húsinu mínu finnst þetta ekki skemmtilegt hobbí hjá mér og biður mig vinsamlegast um að láta allavegana þverflautuna vera. Ég á erfitt með að verða við þeim óskum.

-Var Júsénkó svona útlítandi áður en það var eitrað fyrir honum?

miðvikudagur, desember 08, 2004

Yfirmaðurinn minn heitir Einar. Í dag fór ég í bíó (vinn í kringlubíói, fór á Polar Express) og í hléinu sá ég Einar. Ég kallaði til hans "Hei, Einar! Ég ætlaði að segja upp." þá sagði hann bara "ókei" bætti svo við að ég ætti að skrifa uppsagnarbréf. Ég hljóp inn í miðasölu, náði mér í blað og penna og skrifaði eftrifarandi:

Einar,

Hér með segi ég upp störfum mínum í Sambíóunum Kringlunni.
Óska eftir að fá að hætta (krassblettur) sem fyrst.

Salóme R. Gunnarsdóttir


Svo hljóp ég með bleðilinn upp til hans og afhenti honum. Hann sagði að þetta væri án efa ömurlegasta uppsagnarbréf sem hann hafi fengið.

Núna er ég hress.
Það var furðulega fínt að segja upp, góðir tímar.

...og hey, ég á vinkonu. Fyrir forvitna má tékka á þessu