Svakalega er það hresst að vakna klukkan sex á nýársdag og uppgötva að eftir klukkutíma þarf maður að taka sig til og koma sér í vinnuna. Svo er það líka sú uppgötvun að í gær fékk maður lánaðan bol hjá litlu systur einhvers og þarf að skila honum í dag. Sé stúlkan að lesa þetta kem ég með hann þegar ég er búin í vinnunni.
En núna fer jólunum bráðum að ljúka og fyrr en varir fara jólatrén að birtast á gangstéttum víðsvegar um borgina. Ég ætla hinsvegar að halda mínu tré eins lengi og unnt er og reyna að fagna afmælinu mínu í byrjun febrúar með því að dansa í kringum það. Það hefur verið ósk mín lengi en fjölskyldumeðlimir og umhyggjusamir kunningjar þreytast aldrei á að benda mér á að tréð verði lítið meira en moldarhrúga þegar dansa skyldi. Því hef ég hengt haus hvað eftir annað og látið það eftir foreldrum mínum að fleygja trénu á þrettándanum.
Núna hringir vekjaraklukkan mín hinsvegar sem þýðir að ég þarf að drattast til vinnu.
Gleðilegt nýtt ár...